MIÐSTÖР INNFLYTJENDARANNSÓKNA  REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNI

RANNSÓKNARVIÐFANGSEFNI

 

Rannsóknir á þeim samfélagslegu áhrifum sem aðstreymi innflytjenda hefur á íslenskt samfélag eru aðkallandi. Jafnframt krefjast slíkar rannsóknir bæði þverfaglegrar og milli-menningarlegrar nálgunar (cross-cultural). Mikilvægi þverfaglegrar greiningar er líka ótvírætt. Jafn mikilvægt er að rannsóknir séu gerðar í nánu alþjóðlegu samstarfi til að auðvelda samanburð og nýta kosti hans. Markmið MIRRA er að bjóða upp á hvetjandi og skapandi rannsóknarumhverfi sem stuðlar að sameiginlegum rannsóknum og flæði hugmynda milli ólíkra heimshluta.