MIÐSTÖР INNFLYTJENDARANNSÓKNA  REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNI

TENGSLANET


MIRRA er í samvinnu við fræðimenn í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Bifröst og Háskólanum á Akureyri. Auk þess er MIRRA í samvinnu við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Hagstofu Íslands, Vinnumálastofnun Íslands, Útlendingastofnun Íslands, Alþjóðahús, Fjölmenningarsetur Íslands á Ísafirði.

Auk þessarar samvinnu við opinberar stofnanir, innlenda háskóla, og aðra aðila sem að innflytjendamálum koma er unnið að því að mynda evrópsk og alþjóðleg tengsl við hliðstæðar stofnanir erlendis. Nú þegar er hafið alþjóðlegt samstarf á sviði rannsókna við Center for Migration Research (CMR) við Háskólann í Varsjá í Póllandi (University of Warsaw) og Fafo – Institute for Labour and Social Research í Osló, Noregi. Jafnframt er unnið að tengslum við: CEIFO (Rannsóknarmiðstöð alþjóðlegra búferlaflutninga og etnískra tengsla) í Stokkhólmi, Svíþjóð, IMES (Institute for Migration and Ethnic Studies) í Amsterdam Hollandi. COMPAS (Centre for Migration, Policy and Society) í Oxford Bretlandi og MPI (Migration Policy Institute) í Washington, DC í Bandaríkjunum auk annarra.