MIÐSTÖР INNFLYTJENDARANNSÓKNA  REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNI

 

SAMANTEKT RANNSÓKNA OG RITA UM INNFLYTJENDARANNSÓKNIR

 

MIRRA hefur gert umfangsmikla samantekt um rannsóknir og rit um málefni innflytjenda og íslenskt fjölmenningarsamfélag. Samantektin sem má nálgast hér fyrir neðan nær frá árinu 1987 til þessa árs. Þar er að finna upplýsingar um rannsóknir um málefni innflytjenda og íslenskt fjölmenningarsamfélag sem hafa verið unnar á Íslandi, eða unnar af Íslendingum við erlendar rannsóknarstofnanir, svo og hvers konar rit og skýrslur um þennan málaflokk.

Rauði kross Íslands sá um söfnun og skráningu ritaðra upplýsinga um málefni innflytjenda allt frá árinu 2004, en fór þess á leit haustið 2007 að MIRRA tæki að sér umsjón með verkefninu. MIRRA hefur nú uppfært efnið og bætt við ýmsum upplýsingaþáttum sem ekki voru í eldri útgáfum, svo sem umfangi, útgáfustað, lykilorðum og tegund rannsókna eða rits. Þetta ætti að gera þeim auðveldara fyrir sem þurfa að finna upplýsingar um tiltekin svið innan þessa málaflokks.

Til þess að gera þeim sem þurfa að finna upplýsingar um stöðu mála á Íslandi eða leita að upplýsingum um ákveðna þætti í rannsóknum á málefnum innflytenda auðveldara um vik, verður þessi samantekt í stöðugri uppfærslu. Fyrst um sinn verður einungis hægt að nálgast yfirlitið á .pdf formi, en þegar frá líður verður settur upp tölvutækur gagnagrunnur, þar sem unnt verður að leita eftir höfundi, ártali, lykilorðum o.fl.

Þessi samantekt um rannsóknir og rit um málefni innflytjenda var unnin fyrir fé sem Baugur Group veitti til uppbyggingar þekkingarbanka á vegum MIRRA.

Smelltu hér fyrir neðan til að nálgast samantektina.

Rannsóknir og rit um innflytjendamál (júní 2009)  

Tilkynna nýja rannsókn / breyta upplýsingum um rannsókn

Starfsfólk MIRRA hvetur þig eindregið til að láta vita af nýjum rannsóknum eða ritverkum um innflytjendamál, svo og að tilkynna okkur um breytingar, viðbætur eða lagfæringar á hugsanlegum villum. Eyðublað er hér fyrir ofan, sem hægt er að fylla í og senda á netfangið rannsoknir@mirra.is

HVERS KONAR RIT ERU ÞETTA?

 

Smelltu hér til að sjá hvaða tegundir rita er að finna í samantektinni.